Knattspyrnudeild Þórs og danska B-deildarliðið
Aarhus Fremad hafa komist að samkomulagi um félagaskipti fyrir Ingimar Arnar Kristjánsson.
Ingimar hélt utan um helgina og hefur nú undirritað samning við danska félagið. Aarhus Fremad kaupir Ingimar af Þór þar sem Ingimar átti hálft ár eftir af samningi sínum við Þór.
Ingimar kveður nú Þorpið eftir að hafa farið upp í gegnum alla yngri flokka félagsins og þrátt fyrir að vera rétt nýskriðinn yfir tvítugt hefur Ingimar leikið 108 meistaraflokksleiki fyrir Þór og skorað í þeim 23 mörk.
Við óskum Ingimar til hamingju með þetta skref á sínum ferli og hlökkum til að fylgjast með honum í nýju verkefni.

Ingimar mættur til Danmerkur