Karen Hulda æfir með U15

Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 27.-29. september.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði, en einnig fara fram tveir leikir á Kópavogsvelli 28. september.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Í hópnum er Þórsarinn Karen Hulda Hrafnsdóttir. Karen var lykilmaður í liði 4.flokks sem hafnaði í 6.sæti A-deildar á nýafstöðnu tímabili og hefur einnig leikið með 3.flokki Þórs/KA í sumar.

Við óskum Karen til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.