KA/Þór Íslandsmeistarar í 4. flokki

KA/Þór, Íslandsmeistarar í 4. flokki 2023. Mynd: HSÍ
KA/Þór, Íslandsmeistarar í 4. flokki 2023. Mynd: HSÍ
Stelpurnar í 4. flokki KA/Þórs í handbolta unnu Val í framlengdum úrslitaleik í dag.
 
Viðureign KA/Þórs og Vals var æsispennandi og fór í framlengingu, en þar hafði KA/Þór betur, 28-26. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 22-22, en KA/Þór hafði tveggja marka forystu í leikhléinu. Bergrós Ásta Guðmundsdóttir úr KA/Þór var valin maður leiksins, en hún skoraði 14 mörk í leiknum.
 
Stutt er síðan stelpurnar á yngra ári í 6. flokki hjá KA/Þór unnu Íslandsmeistaratitil. Glæsilegur árangur hjá ungu stelpunum í KA/Þór.
 
Íslandsmeistarar í 6. flokki yngri - KA/Þór.
 

Best í úrslitaleiknum í 4. flokki, skoraði 14 mörk - Bergrós Ásta Guðmundsdóttir. Mynd: HSÍ.