Körfubolti: Annar leikur Þórs og ÍR í kvöld

Þórsarar taka á móti ÍR-ingum í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í kvöld kl. 19:15. 

Þetta er annar leikur einvígisins, en ÍR-ingar fóru með sigur af hólmi í fyrsta leiknum sem fram fór í Breiðholtinu fyrr í vikunni og tóku forystu í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígið, sem verður gegn Fjölni eða Sindra. 

Það hefur sýnt sig að góð mæting á leiki, heima og að heiman, skiptir máli fyrir liðin okkar því stuðningur úr stúkunni getur gert útslagið í jöfnum leikjum. Þórsarar hafa mætt vel á leiki í úrslitakeppnum kvenna og karla í körfuboltanum og hjá karlaliðinu í handboltanum og engin ástæða til annars en að halda því áfram. 

Leikur liðanna hefst kl. 19:15, en upphitun hefst með hamborgurum og tilheyrandi kl. 18.