Kristófer Kristjánsson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum út keppnistímabilið 2028.
Kristó lék 12 leiki í deild og bikar síðastliðið sumar og skoraði eitt mark en meiðsli héldu Kristó frá vellinum yfir hásumarið og kom hann öflugur inn í byrjunarliðið á lokakafla mótsins þegar liðið tryggði sér toppsæti deildarinnar.
Kristó er 22 ára gamall og hefur spilað 81 leik fyrir Þór og skorað fimm mörk. Kristó á einnig tvo landsleiki fyrir U19 ára landslið Íslands.
Við óskum Kristó til hamingju með samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni næsta sumar.