Mikilvægur leikur á SaltPay vellinum í kvöld!

Þór/KA tekur á móti KR á Saltpay vellinum í Þorpinu í kvöld kl.18.00. Er um að ræða leik í 9. umferð Bestu deildarinnar og þann ellefta hjá liðunum á sjö vikum! Við viljum hvetja alla Akureyringa til að mæta og styðja við bakið á stelpunum en með sigri þoka þær sér nær efri hluta deildarinnar, þar sem þær telja sig eiga að vera!