Nikola Kristinn framlengir

Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Nikola Kristinn Stojanovic handsala samni…
Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Nikola Kristinn Stojanovic handsala samninginn.

Miðjumaðurinn Nikola Kristinn Stojanovic hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Þórs.

Nikola er fæddur árið 2000 og á að baki 145 leiki í meistaraflokki með Þór, Fjarðabyggð og KF. Hann hóf meistaraflokksferilinn með Fjarðabyggð og spilaði með liðinu í 2. deild árin 2017-2019 og hluta sumars 2020. Sumarið 2021 var hann lánaður frá Þór til KF, en var síðan að fullu með Þórsliðinu 2022 og áfram á þessu ári. 

Nikola hefur nú undirritað nýjan samning til tveggja og hálfs árs, út árið 2025, en fyrri samningur var til loka þessa árs.


Nikola Kristinn Stojanovic í leik með Þór gegn Selfyssingum á dögunum. Myndir: Þórir Tryggva.