Nýir búningar væntanlegir

Nikola Kristinn Stojanovic er alltaf glæsilegur á velli
Nikola Kristinn Stojanovic er alltaf glæsilegur á velli

Meistaraflokkur karla og yngri flokkar Þórs munu í sumar leika í nýjum keppnisbúningi frá Nike.

Er þetta fjórða sumarið sem Þór spilar í Nike en ,,gamli" búningurinn hafði verið við lýði þrjú undanfarin ár og reynst afar vel. Strákarnir í meistaraflokki vígðu nýja búningin um helgina í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins og er óhætt að segja að þeir, bæði búningarnir og strákarnir, séu glæsilegir og félaginu til sóma.

Búningar yngri flokka eru sem áður eins og meistaraflokkur spilar í. Auglýsingarnar á treyjunum eru hins vegar ekki þær sömu.

Búningarnir verða til sölu í Sport24 og er áætlað að sala þeirra hefjist í byrjun maí. Við munum láta vita hér á heimasíðunni er sala á nýja búningnum hefst.