Öruggur sigur á ungmennaliði Hauka

Þórsarar mættu ungmennaliði Hauka í Grill 66 deild karla í handbolta á laugardag og unnu öruggan 11 marka sigur. Þórsarar náðu yfirhöndinni fljótlega í leiknum, voru með sjö marka forystu í leikhléi og sigurinn aldrei í hættu .

Þetta var þriðji leikur liðsins í deildinni, en Þórsarar höfðu fyrir leikinn unnið einn og gert eitt jafntefli. Þeir eru því enn taplausir eftir þrjár umferðir og sitja í 2. Sæti deildarinnar með fimm stig eins og Fjölnir, einu stigi á eftir ÍR.

Haukar-U - Þór: (12-19) 22-33

Þór
Mörk: Aron Hólm Kristjánsson 6, Brynjar Hólm Grétarsson 6, Jón Ólafur Þorsteinsson 4, Arnþór Gylfi Finnsson 3, Friðrik Svavarsson 3, Sigurður Ringsted Sigurðsson 2, Andri Snær Jóhannsson 2, Halldór Yngvi Jónsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 13, Tómas Ingi Gunnarsson 2.
Refsingar: 8 mínútur

Næsti leikur er einnig útileikur þegar okkar menn heimsækja HK í Kórinn.

  • Deild: Grill 66 deild karla
  • Leikur: HK - Þór
  • Staður: Kórinn
  • Dagur: Laugardagur 14. Október
  • Tími: 14:00