Sumaræfingar í körfubolta hefjast 13. júní

Körfuknattleiksdeild mun hefja æfingar á ný mánudaginn 13. júní og æft verður út júlí. Yfirþjálfari er Daníel Andri Halldórsson og honum til aðstoðar verða meistaraflokksleikmennirnir Ólafur Snær Eyjólfsson og Páll Nóel Hjálmarsson, ásamt fleiri ungum og efnilegum þjálfurum. Allar æfingar munu fara fram í Glerárskóla. 

Á æfingum verður farið yfir helstu einstaklingsatriði í körfubolta eins og skottækni, boltameðferð, fótavinnu, vörn o.fl. ásamt grundvallaratriði í spili eins og varnar- og sóknarleik liðs. 

Æfingagjöld verða til greiðslu inn á Sportabler á næstu dögum.