Þór Íslandsmeistari í 4.flokki karla

Þórsarar eru Íslandsmeistarar í 4.flokki A eftir 5-1 sigur á FH í úrslitaleik Íslandsmótsins á Kaplakrikavelli í kvöld.

Strákarnir hafa spilað frábærlega í allt sumar og eru taplausir í sextán leikjum í deild og bikar en þeir mæta Breiðabliki í bikarúrslitum á Kópavogsvelli um næstu helgi.

Óskum drengjunum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Þjálfarar 4.flokks eru Garðar Marvin Hafsteinsson, Ármann Pétur Ævarsson og Aðalgeir Axelsson.