Þór/KA mætir Val í dag

Sjöunda umferð Bestu deildarinnar hefst í dag með fjórum leikjum, þar á meðal er heimsókn stelpnanna okkar á Hlíðarenda þar sem þær mæta Val kl. 19:15.

Fyrir umferðina er Valur á toppnum með 13 stig, en Þór/KA í 5. sæti með níu stig. Liðin unnu hvort sinn leikinn þegar þau mættust í Bestu deildinni í fyrra. Þór/KA sigraði 2-1 í Boganum í maí, en Valur vann 3-0 í seinni leiknum. 

Þessi lið hafa mæst 36 sinnum í efstu deild Íslandsmótsins og niðurstaðan nokkuð Val í hag. Þór/KA hefur unnið sjö sinnum, tíu sinnum hefur endað með jafntefli, en Valur unnið 19 leiki.

Leikur liðanna hefst kl. 19:15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.