Þór/KA tvöfaldir Barcelona Girls Cup-meistarar

Marki fagnað í Barcelona. Þrír bikarar heim ásamt nokkrum einstaklingsverðlaunum.
Marki fagnað í Barcelona. Þrír bikarar heim ásamt nokkrum einstaklingsverðlaunum.

 

Tvö lið frá Þór/KA unnu Barcelona Girls Cup í dag í árgöngum 2006 og 2007.

A-lið skipað leikmönnum fæddum 2005 og 2006 vann Barcelona Girls Cup með 2-0 sigri á heimaliðinu UD Viladecans í úrslitaleik, með mörkum frá Sonju Björg Sigurðardóttur og Bríeti Jóhannsdóttur. Liðið fór því í gegnum mótið án þess að fá á sig mark, vann alla leiki sína. Eins og kom fram í frétt fyrr í dag vann liðið alla þrjá leiki sína í riðlinum, 2-0, 1-0 og 5-0, síðan 2-0 gegn þýsku liði í undanúrslitum og aftur 2-0 í sjálfum úrslitaleiknum.

B-lið í sama aldursflokki endaði í 5. sæti mótsins og er því sigurvegar neðri hlutans í þessum árgangi. Eftir að hafa gert eitt jafntefli og tapað tveimur leikjum í riðlinum gerði liðið markalaust jafntefli í umspilsleik um 5.-8. sæti og vann í vítaspyrnukeppni og svo aftur í leik um 5. sætið, 2-2, með tveimur mörkum frá Emilíu Björk Óladóttur, og vann síðan í vítaspyrnukeppni.

A-liðið í 2007 árgangnum vann einnig mótið með 1-0 sigri á Epsom and Ewell Colts í úrslitaleiknum. Karlotta Björk Andradóttir skoraði eina mark úrslitaleiksins. Áður hafði liðið unnið alla leiki sína í riðlinum með markatölunni 15-1, unnu sænskt lið 5-0 í átta liða úrslitum, heimalið frá Barcelona 3-0 í undanúrslitum og svo enska liðið í úrslitaleiknum.

B-liðið í árgangi 2007 gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur leikjum í riðlinum, tapaði tveimur umspilsleikjum í keppni um 9.-16. sætið, 2-3, gegn sænsku liði, og vann WSS Barcelona 3-1 í leik um 15. sætið.

Úrslit allra leikja má finna á heimasíðu mótsins:
Barcelona Girls Cup - 2006
Barcelona Girls Cup - 2007

Þjálfarar liðanna eru Ágústa Kristinsdóttir, Birkir Hermann Björgvinsson og Pétur Heiðar Kristjánsson. Fararstjórar í ferðinni voru Elma Eysteinsdóttir, Erla Ormarsdóttir, Eyrún Kristína Gunnarsdóttir og Sigrún Björk Sigurðardóttir. Hluti af leikmönnum úr 2. flokki var einnig með í þessari ferð án þess að taka þátt í mótinu, en fararstjóri með þeim hópi er Valdimar Pálsson.

Barcelona Cup-meistarar í árgangi 2006.

Árgangur 2006, lið 2, sigurvegarar í neðri hluta 2006 keppninnar, s.s. 5. sæti.

Barcelona Girls Cup-meistarar, árgangur 2007, lið 1.

Árgangur 2007, lið 2.