Þórsarar mæta Selfyssingum í dag

Þór tekur á móti liði Selfoss í Lengjudeildinni á Þórsvellinum í dag kl. 18. Hefðbundin upphitun stuðningsmanna verður í Hamri frá kl. 17.

Þór og Selfoss hafa mæst 16 sinnum í næstefstu deild Íslandsmótsins og niðurstaðan er jöfn, sjö sigrar hjá voru liði og tvisvar hafa þau skilið jöfn. Selfyssingar þó með fjórum mörkum fleiri í þessum 16 viðureignum, markatalan 26-30. Selfoss vann báða leiki þessara liða í deildinni í fyrrasumar, en síðasti sigur Þórs gegn Selfossi í deildinni kom 2018, en þá vann Þór 2-1 á Þórsvellinum og 5-3 á Selfossi. Selfoss féll úr deildinni það ár og liðin mættust ekki í Íslandsmótinu árin 2019 og 2020.

Þórsliðið hefur unnið þrjá leiki og tapað þremur. Allir sigrarnir komu á  heimavelli og öll töpin á útivelli. Þór er eina liðið í deildinni sem unnið hefur alla heimaleiki sína til þessa, en jafnframt eina liðið í deildinni sem hefur tapað öllum útileikjunum. Heimaleikirnir hafa gefið stigin með góðum stuðningi, en liðið hefur ekki náð í stig og á enn eftir að skora mark á útivelli.

Hefðbundin upphitun verður í Hamri og á pallinum frá kl. 17.

Leikurinn er í 7. umferð Lengjudeildarinnar, en fyrir leikinn í dag munar einu stigi á þessum liðum. Selfoss er í 4. sæti með tíu stig, en Þór í 5. sætinu með níu stig eftir fyrstu sex umferðirnar.