Þrír nýir leikmenn í raðir Þórs

Nýir leikmenn í röðum körfuknattleiksliðs Þórs: Michael Walcott, Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarða…
Nýir leikmenn í röðum körfuknattleiksliðs Þórs: Michael Walcott, Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarðar ásamt Stefáni Péturssyni, formanni kkd. Þórs, og Reynir Bjarkan Róbertsson með Jóni Inga Baldvinssyni, úr stjórn kkd. Þórs.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við þrjá nýja leikmenn sem leika munu með liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili, einn Bandaríkjamann, einn kemur frá Hetti og einn frá Tindastóli. Þetta eru þeir Michael Walcott, Reynir Bjarkan Róbertsson og Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarðar. Sá bandaríski er á leið inn í þriggja ára regluna þar sem hann hefur verið búsettur á Íslandi undanfarin þrjú ár, en Þór hefur áður samið við annan Bandaríkjamann, Harrison Butler.

Reynir Bjarkan Róbertsson

Reynir er 188 sm hár bakvörður, fæddur árið 2004. Hann spilaði á síðasta ári fyrir Íslandsmeistara Tindastól en auk þess var hann lykilmaður í ungmennaflokksliði Stólanna sem vann sína deild. Reynir er virkilega efnilegur leikmaður sem getur búið til færi fyrir sjálfan sig og aðra á fjölbreyttan hátt. Hann mun hjálpa okkur mikið í stöðu bakvarðar/leikstjórnanda ásamt Smára og Hákoni.


Reynir Bjarkan Róbertsson og Jón Ingi Baldvinsson, úr stjórn kkd. Þórs.

Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarðar

Sigurjón kemur til okkar frá Hetti þar sem hann var í æfingahópi meistaraflokks á síðasta ári en vegna meiðsla og styrks hópsins fékk Sigurjón ekki mörg tækifæri til að sanna sig. Sigurjón er 202 sm á hæð og sterklega byggður en hann mun koma til með styrkja okkur í baráttunni í kringum körfuna. Sigurjón er fæddur árið 2000.


Stefán Þór Pétursson, formaður kkd. Þórs, og Sigurjón Trausti Guðgeirsson Hjarðar.

Michael Walcott

Michael er 183 sm skotbakvörður frá Bandaríkjunum. Hann hefur búið á Íslandi undanfarin þrjú ár og hefur á þeim tíma spilað fyrir fjölda liða. Vegna reglugerða um erlenda leikmenn hefur það reynst Mike erfitt að finna sér lið þar sem aðeins má spila einum bandarískum leikmanni í hverju liði, en flest fá til sín bandarískann atvinnumann. Á næsta ári mun Mike færast inn á þriggja ára regluna og því getað spilað án hamla. Michael Walcott er mikill orkubolti og sterkur karakter en hann mun koma með reynslu og orku inn í hópinn. Mike er fæddur árið 1989.


Michael Walcott.