Þrír Þórsarar með U15 til Slóveníu

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í UEFA Development Tournament.

Mótið fer fram í Slóveníu dagana 10.-16. október næstkomandi. Ísland mætir þar Slóveníu, Norður Írlandi og Lúxemborg.

Í hópnum eru 20 leikmenn frá 14 félögum, flestir frá Þór eða þrír.

Það eru þeir Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason.

Smelltu hér til að skoða hópinn í heild.

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.