Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Sumaræfingar hjá yngri flokkum Þórs í fótbolta hefjast þriðjudaginn 10.júní næstkomandi en fram að þeim tíma er æft samkvæmt tímasetningum á Abler.
Mjög mikilvægt er að foreldrar gangi frá skráningu á Abler en Abler er sérstakt samskiptaforrit sem þjálfarar nýta til að miðla öllum upplýsingum um æfingar, breytingar á æfingatímum og allt annað sem tengist starfinu.
Smelltu hér til að fá upplýsingar um skráningu í fótbolta.
Ljóst er að Þórssvæðið mun iða af lífi í allt sumar en fótboltaæfingar eru í gangi frá klukkan 9 á morgnana til 20 á kvöldin flesta daga sumarsins auk fjölda leikja í Íslandsmótum. Eins og flestir Þórsarar vita standa miklar framkvæmdir yfir á Ásnum þar sem senn mun rísa gervigrasvöllur sem mun umbylta öllu starfi knattspyrnudeildar. Á meðan beðið er eftir að völlurinn verður klár er aðalvöllurinn mikið nýttur undir æfingar og leiki yngri flokka en yngstu flokkar æfa mest á Lundinum líkt og undanfarin ár, að undanskildum 8.flokki sem æfir á Skansi en einnig er Boginn nýttur þegar á þarf að halda.
Vanti þig einhverjar frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við eftirtalda aðila
Arnar Geir Halldórsson, yfirþjálfari - arnar@thorsport.is
Margrét Árnadóttir, yfirþjálfari 5-8.flokks kvenna - margret@thorsport.is
Garðar Marvin Hafsteinsson, yfirþjálfari 5-8.flokks karla - gardar@thorsport.is