Vel heppnað skemmtimót píludeildar

Virkilega vel heppnað skemmtimót Píludeildar Þórs í tvímenning fór fram í gærkvöldi í aðstöðunni hjá okkur. 

21 lið var skráð til leiks og spilað var í fjórum riðlum. Efstu fjögur liðin í hverjum riðli fóru áfram í 16 liða úrslit. 

Úrslit kvöldsins:

Í undanúrslitum mættust:

Björn Andri Ingólfsson / Þorsteinn Björnsson vs Steinþór Már / Sigurður Fannar

Óskar Jónasson / Jón Svavar vs Jason Wright / Sigurður Þórisson

Í úrslitum mættust svo:

Björn Andri Ingólfsson / Þorsteinn Björnsson vs Jason Wright / Sigurður Þórisson

Það voru félagarnir frá Grenivík (Björn Andri og Þorsteinn) sem sigruðu úrslitaleikinn 5-0! 

Vel gert og til hamingju með sigurinn! 

Þökkum öllum þeim sem mættu og gaman að sjá fullt af nýjum andlitum. Það er nóg um að vera í Píludeild Þórs í haust/vetur og verða allir viðburðir auglýstir hér á Facebook síðu Píludeildar Þórs