Viðar Reimarsson í U18

Hinn ungi og bráðefnilegi leikmaður handknattleiksliðs okkar Þórsara, Viðar Reimarsson hefur verið valinn í lokahóp U18 ára landsliðs Íslands. Landsliðsverkefnið er hvorki meira né minna en lokakeppni U18 landsliða sem fram fer í ágúst næst komandi. Þórsfjölskyldan óskar Viðari til hamingju og að sjálfsögðu góðs gengis!