Handboltinn: Spenntir fyrir vetrinum

Þjálfararnir Halldór Örn Tryggvason (t.v.) og Brynjar Hólm Grétarsson (t.h.) ásamt tveimur af ungu l…
Þjálfararnir Halldór Örn Tryggvason (t.v.) og Brynjar Hólm Grétarsson (t.h.) ásamt tveimur af ungu leikmönnunum, Viðari Erni Reimarssyni og Kristjáni Páli Steinssyni.

Karlalið Þórs í handtolba  hefur leiktíðina með heimaleik gegn ungmennaliði Vals í Íþróttahöllinni laugardaginn 23. september. Leikurinn hefst kl. 16.

Þór mætir til leiks með blöndu ungra og eldri leikmanna. Eini erlendi leikmaðurinn sem kláraði tímabilið með Þór í fyrra, Jonn Rói Tórfinsson, er farinn annað, en á móti hefur félagið endurheimt reynslumikla leikmenn. Tveir taka fram skóna að nýju og einn er kominn aftur heim til að spila og þjálfa. Tveir reynsluboltar eru enn óákveðnir hvort þeir halda áfram.

Brynjar Hólm Grétarsson var í sumar ráðinn aðstoðarþjálfari Halldórs Arnar Tryggvasonar, en Brynjar hefur verið hjá Stjörnunni undanfarin ár. Hann kemur aftur heim og verður bæði leikmaður og aðstoðarþjálfari. Þá hafa þeir Friðrik Svavarsson og Garðar Örn Jónsson tekið fram skóna að nýju.

Halldór Örn kveðst vera spenntur fyrir vetrinum, með þéttan og góðan hóp. Við erum núna í fyrsta skipti í langan tíma með engan erlendan leikmann, liðið okkar er skipað heimamönnum og flestallir uppaldir leikmenn, einnig náðum við að draga nokkra hætta aftur fram á sjónarsviðið sem munu aðstoða okkur í vetur. Þessir eldri leikmenn koma inn með gríðarlega ró og reynslu í hópinn,“ segir Halldór Örn.

Liðið hefur spilað nokkra æfingaleiki í haust. Við vorum sáttir með svörin sem við fengum frá strákunum. Fram undan er langhlaup í Grilldeildinni, okkur langar í þetta fyrsta sæti sem er í boði, en erum þó meðvitaðir um að það verði erfitt,“ segir Halldór Örn Tryggvason þjálfari handknattleiksliðs Þórs.

Fyrstu leikir Þórs:
  Lau. 23.09. kl. 16:00: Þór - Valur U
  Mán. 02.10. Kl. 19:30: K.A.U - Þór
  Lau. 07.10. Kl. 16:00: Haukar U - Þór
  Lau. 14.10. Kl. 14:00: HK U - Þór
  Lau. 21.10. Kl. 16:00: Þór - Hörður

Leikir í 32ja liða úrslitum Powerade-bikarkeppninnar fara fram 28. og 29. október, en Þór situr yfir og fer beint í 16 liða úrslitin.

Komnir
  Brynjar Hólm Grétarsson frá Stjörnunni
  Friðrik Svavarsson (byrjar aftur)
  Garðar Már Jónsson (byrjar aftur)
  Heiðmar Örn Björgvinsson frá KA.
  Kári Brynjólfsson frá KA.
  Þormar Sigurðsson frá KA.

Farnir
  Arnar Þór Fylkisson í Val
  Jonn Rói Tórfinnsson
  Jóhann Geir Sævarsson í KA 

Óákveðið
  Aðalsteinn Ernir Bergþórsson
  Hlynur Elmar Matthíasson

Hópurinn í vetur 
Markverðir
  Kristján Páll Steinsson (2002)
  Tómas Ingi Gunnarsson (2002)
  Tristan Ylur Guðjónsson (2006)
Útileikmenn
  Andri Snær Jóhannsson (2004) - vinstra horn
  Arnór Þorri Þorsteinsson (1994) - miðja/skytta
  Arnviður Bragi Pálmason (2005) - skytta/miðjumaður
  Arnþór Gylfi Finnsson (1995) - allar stöður á vellinum
  Aron Hólm Kristjánsson (2002) - miðja/ skytta
  Ágúst Örn Vilbergsson (2002) - vinstra horn
  Brynjar Hólm Grétarsson (1994) - vörn/stór skytta
  Friðrik Svavarsson (1993) - línumaður
  Garðar Már Jónsson (1994) - skytta/horn
  Halldór Kristinn Harðarson (1993) - vinstra horn
  Halldór Yngvi Jónsson (1999) - línumaður
  Heiðmar Örn Björgvinsson (2006) - miðjumaður
  Hilmir Kristjánsson (1999) - hægra horn - Skytta
  Jón Ólafur Þorsteinsson (2002) - skytta/miðjumaður
  Kári Brynjólfsson (2006) - vinstri skytta
  Kristján Páll Steinsson (2002) - markmaður
  Sigurður Gísli Ringsted (2004) - hornamaður
  Sigurður Ringsted Sigurðsson (2004) - línumaður
  Viðar Ernir Reimarsson (2004) - skytta/miðjumaður
  Þormar Sigurðsson (2006) - hornamaður

Þjálfarateymið skipa þeir Halldór Örn Tryggvason, Brynjar Hólm Grétarsson og Hörður Flóki Ólafsson, ásamt Kristni Ingólfssyni sem sá um styrk og þol í sumar.

Breytingar á útsendingum

Undanfarin ár hefur handboltaleikjum Þórs verið streymt á rásum Þór TV, fyrst á YouTube og síðan Livey, en nú hefur Sjónvapr Símans tekið við útsendingum frá öllum handboltaleikjum. Komið hefur verið fyrir sjálfvirkum vélum í íþróttahúsum víða um land, þar á meðal Íþróttahöllinni á Akureyri, og eru þær notaðar í beinar útsendingar.

Handboltarásir Sjónvarps Símans eru nr. 401-405 í sjónvarpinu.