Íslandsmeistarar 3.flokks kvenna 2026
Aftari röð frá vinstri: Anton Orri Sigurbjörnsson þjálfari, Harpa Karen Karlsdóttir, Emilía Ósk Birkisdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir fyrirliði, París Hólm Jónsdóttir, Arna Lind Jóhannsdóttir, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Þóra Margrét Guðmundsdóttir, Auður Ósk Kristjánsdóttir, Ísabella Anna Kjartansdóttir, Guðný Helga Geirsdóttir og Þórólfur Sveinsson þjálfari.
Fremri röð frá vinsti: Fanney Mjöll Arnarsdóttir, Kolfinna Kara Helgadóttir, Guðrún Lára Atladóttir, Halldóra Ósk Gunnlaugsdóttir Briem, Sigyn Elmarsdóttir, Manda María Jóhannsdóttir, Emma Júlía Cariglia og Bríet Sara Níelsdóttir.
Ljósmyndari: Sævar Geir Sigurjónsson.
Stelpurnar í 3.flokki Þór/KA/Völsungur/Dalvík/KF tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með glæsibrag í gær þegar liðið bar sigurorð af Val/KH í lokaumferð A-deildar 3.flokks kvenna.
Tímabilið hjá flokknum er þó ekki búið þar sem A2 liðið á eftir tvo leiki í B-deildinni auk þess sem A1 á enn möguleika á því að vinna tvöfalt þar sem þetta sama lið og tryggði sér Íslandsmeistaratitil er einnig komið í undanúrslit í bikarkeppni 3. flokks og mætir Breiðabliki/Augnabliki á Fífuvelli í Kópavogi 30. september.