86.Goðamót Þórs um helgina

Knattspyrnudeild Þórs heldur um helgina 86. Goðamótið, en mótin hafa verið haldin árlega frá því að Boginn var opnaður snemma árs 2003, alla tíð undir merkjum Goða í samstarfi við Norðlenska.

Á mótinu núna um helgina eru það drengir í 6.flokki sem etja kappi. 10 félög mæta á mótið og er keppt frá því klukkan 16:00 á föstudegi og til hádegis á sunnudag og eru keppendur ríflega 300 talsins.

Leikjadagskrár, riðla og deildir, úrslit leikja má svo finna í mótskerfinu hér: Goðamót 6.flokkur karla

Í mótakerfinu er hægt að skoða leikjadagskrár og úrslit eftir félögum, liðum, riðlum og deildum.