Aðalfundur Þórs þriðjudaginn 28.apríl

Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Hamri þriðjudaginn 28.apríl klukkan 17:30

Samkvæmt 9.grein laga Þórs skal dagskrá aðalfund Þórs vera eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
3. Skýrsla gjaldkera, ársreikningur lagður fram til samþykktar.
4. Tillögur um lagabreytingar, sem löglega eru fram komnar.
5. Kosningar.
6. Ákvörðun árgjalds.
7. Önnur mál.

Breytingar á lögum félagsins verða lagðar fram á fundinum.

Íþróttafélagið Þór hvetur félagsmenn til þess að mæta á fundinn.