Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Þorsteinn Ólafsson fyrrum þjálfari og leikmaður með Þór í knattspyrnu er látinn.
Hann lést þann 5 júní s.l.
Þorsteinn var fæddur 15. mars árið 1951 og var því rétt orðin, 75 ára að aldri.
Þorsteinn Ólafsson markvörður lék með Þór í 1. deild sumarið 1983 en það ár endaði Þór í 7. sæti, þá þjálfaði Björn Árnason liðið. Eftir tímabilið hætti Björn með Þór og Þorsteinn tók við liðinu og stýrði því sumarið 1984 í 1. deild hann lék einnig nokkra leiki með liðinu sem endaði 8. sæti. Veturinn 1984-1985 var hann aðstoðarþjálfari/liðsstjóri í handboltaliði Þórs. Sumarið 1985 tók Jóhannes Atlason við Þór og þá var Þorsteinn aðstoðarþjálfari hluta sumarsins.
Þorsteinn var einkar góður félagi og alla tíð eftir veru hans hjá Íþróttafélaginu Þór minntist hann áranna hér og var lengi í góðu sambandi við þá leikmenn er léku með honum hjá okkur Þórsurum.
Íþróttafélagið Þórs sendir öllum ástvinum Þorsteins sínar innilegust samúðarkveðjur.