Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
„Við vorum að skrifa nýja sögu fyrir félagið“
Bergischer HC, undir stjórn Þórsarans Arnórs Þórs Gunnarssoar, náði sögulegum árangri um helgina þegar liðið hafnaði í öðru sæti í þýsku bikarkeppninni í handbolta. Liðið tapaði úrslitaleiknum gegn Füchse Berlin en hafði áður slegið út stórlið Magdeburg í dramatískum undanúrslitaleik sem fór alla leið í vítakeppni. Þetta var í fyrsta skipti í sögu félagsins sem Bergischer HC kemst í úrslitaleik keppninnar.
Heimasíðan hafði samband við Arnór Þór og spurði hann út í árangurinn, óvænta sigurgöngu liðsins og framtíðina.
Aðspurður um hvað þessi árangur þýði fyrir félagið segir Arnór að þetta sé gríðarlega stórt skref: „Þetta er og var auðvitað mjög stórt fyrir okkur sem félag að hafa fyrst og fremst komist í Final4. Í 20 ára sögu félagsins er þetta í annað skiptið sem við spilum í Final4 en í fyrsta skipti sem Bergischer HC kemst í úrslitaleik bikarsins. Fyrir akkúrat tíu árum spiluðum við einnig við SC Magdeburg í undanúrslitum sem tapaðist í framlengingu, þannig að þetta hafði líka ákveðna sögulega tengingu fyrir félagið.“
Þegar hann er spurður út í undanúrslitaleikinn gegn Magdeburg segir hann að fáir hafi trúað á liðið fyrirfram: „Það kom öllum handboltasérfræðingum hérna í Þýskalandi á óvart að við hefðum komist yfirhöfuð í Final4. Umtalið í pressunni og meðal sérfræðinga í vikunni fyrir leikinn var þannig að þetta ætti bara að vera formsatriði fyrir þá. Við vorum hins vegar vel undirbúnir taktískt og notuðum umræðuna fyrir okkur, sem ákveðna hvatningu fyrir leikmennina, og það skilaði sér inn á völlinn.“
Í úrslitaleiknum gegn Füchse Berlin segir hann liðið hafa farið inn með fullt sjálfstraust: „Við fórum inn í leikinn með það markmið að vinna bikarinn og með mikið sjálfstraust eftir undanúrslitin. Fyrri hálfleikurinn var jafn en maður fann samt að menn voru farnir að þreytast aðeins þegar leið á leikinn. Berlín notfærði sér það mjög vel, keyrðu upp tempóið og refsuðu okkur fyrir það. Þeir eru verðskuldaðir bikarmeistarar.“
Arnór segir þó að það sé margt jákvætt að taka með sér: „Við erum með yngsta lið í Bundesligunni og við þjálfararnir erum virkilega stoltir af strákunum, bæði frammistöðunni og hvernig þeir nutu sín á svona stóru sviði eins og í Lanxess Arena í Köln
„Auðvitað er maður svekktur strax eftir leik en þegar maður horfir upp í stúkuna og sér stuðningsmennina og hversu mikið þetta skiptir þá máli, þá fer maður að átta sig á því að við vorum í raun að skrifa nýja sögu fyrir félagið. Þetta er besti árangur félagsins hingað til.“
Að lokum var Arnór spurður út í framtíðina: „Ég á tvö ár eftir af mínum samningi og ætla mér að klára hann. Svo kemur bara í ljós hvað gerist eftir það.“