Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik fyrir Ísland í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur á Lúxemborg á Laugardalsvelli.
Þetta var 113. landsleikur Arons og er hann þar með orðinn leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi ásamt sveitunga sínum, Birki Bjarnasyni.
Langflesta þessara leikja hefur Aron leitt íslenska liðið sem fyrirliði. Meðal annars á stærstu augnablikum í sögu íslenska landsliðsins þegar Aron Einar leiddi Ísland til þátttöku á EM 2016 í Frakklandi og á HM 2018 í Rússlandi.
Smelltu hér til að skoða myndaveislu Fótbolta.net af kveðjustund Arons á Laugardalsvelli
Aron Einar fór upp í gegnum alla yngri flokka Þórs eða allt þar til hann var keyptur til hollenska úrvalsdeildarfélagsins AZ Alkmaar sumarið 2006. Aron hafði þá þegar leikið 24 leiki fyrir meistaraflokk Þórs. Aron sneri aftur í Þorpið sumarið 2024 og lék 6 leiki í Lengjudeildinni.
Í sumar kom Aron svo aftur heim og lék í fræknum 2-1 sigri Þórs gegn Íslandsmeisturum Víkings en það reyndist eina tap Víkings á tímabilinu og snúningspunktur á tímabilinu hjá okkar mönnum. Aron staldraði stutt við og hélt að nýju til Katar þar sem hann leikur fyrir Qatar SC.