Ási, Einar og Sverrir með U19 til Georgíu - Alls 5 Þórsarar í hópnum

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027.

Ísland mætir þar Georgíu og Svartfjallalandi og verður riðillinn leikinn í Georgíu dagana 3.-10. júní.

Liðið sem endar í efsta sæti riðilins fer upp í A deild undankeppninnar fyrir aðra umferð hennar.

Í hópnum eru þrír leikmenn Þórs; þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason. Þórsararnir Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvason, sem eru á mála hjá danska liðinu Midtjylland eru einnig í hópnum.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum okkar drengjum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.