Baldur Örn og Eva Wium mikilvægustu leikmennirnir

Meistaraflokku Þórs sem mun leika í deild þeirra bestu á næsta tímabli. Mynd: Palli Jóh
Meistaraflokku Þórs sem mun leika í deild þeirra bestu á næsta tímabli. Mynd: Palli Jóh

Baldur Örn og Eva Wium mikilvægustu leikmennirnir

Baldur Örn Jóhannesson og Eva Wium Elíasdóttir voru valin mikilvægustu leikmenn meistaraflokka Þórs í körfubolta á nýliðnu tímabili. Þá voru þau Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Arngrímur Friðrik Alfreðsson valin efnilegustu leikmenn meistaraflokka.

Þetta var tilkynnt á lokahófi sem haldið var að þessu sinni í Hrafnagilsskóla í gærkvöld en þar var veturinn gerður upp með viðeigandi hætti.

Þá fengu þau Hrefna Ottósdóttir og Kolbeinn Fannar Gíslason viðurkenningu en þau náðu þeim áfanga í vetur að spila 100 meistaraflokksleiki fyrir Þór. Fá þau boli merkta með nafni og tölunni 100 þessu til staðfestingar. Því miður átti Kolbeinn Fannar ekki heimangengt og gat ekki tekið við bolunum en hann munn skila sér rétta leið áður en langt um líður..

Einnig var stelpunum færðar rósir fyrir frábæran árangur í vetur en eins og kunnugt er endaði liðið keppni í öðru sæti deildarinnar og leikur á næsta tímabili í deild þeirra bestu. Það er vissulega tilefni til að fagna enda 45 ár frá því að kvennalið Þórs lék meðal þeirra bestu.

Óskum öllum viðeigandi til hamingju.

Daníel Andri þjálfari Þórs, Emma Karólína efnilegust og Eva Wium mikilvægasti leikmaður meistaraflokks kvenna

Óskar Þór þjálfari Þórs, Arngrímur Friðrik efnilegasti leikmaður Þórs og Baldur Örn mikilvægasti leikmaður meistaraflokks karla

Hrefna Ottósdóttir náði þeim áfanga að leika meir en 100 leiki með meistaraflokki Þórs í vetur. 

Kvennalið Þórs sem mun leika í deild þeirra bestu á næsta tímabili

Stelpurnar okkar sem munu leika í deild þeirra bestu á komandi tímabili.  Myndir: Palli Jóh