Egill og Einar með U19 í Slóveníu

Mynd - Akureyri.net
Mynd - Akureyri.net

U19 karla í fótbolta hefur leik á miðvikudag á æfingamóti í Slóveníu.

Í hópnum eru tveir Þórsarar, jafnaldrarnir Egill Orri Arnarsson og Einar Freyr Halldórsson. Sá fyrrnefndi er á mála hjá danska meistaraliðinu Midtjylland en Einar hefur verið í lykilhlutverki í liði Þórs í Lengjudeildinni í sumar.

Liðið mætir Aserbaísjan í fyrsta leik sínum á mótinu og hefest hann kl. 15:00 að íslenskum tíma. Bein útsending verður frá öllum leikjum liðsins á mótinu á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans.

Síða KSÍ

Ísland mætir Sameinuðu arabísku furstadæmunum á laugardag og svo Kasakstan á þriðjudag.