Steingrímur Ingi Björnsson - kveðja

Steingrímur Ingi Björnsson

F: 26.06.1941 D: 13.10.2026.

Minning.

Látinn er á Akureyri knattspyrnumaðurinn Steingrímur Ingi Björnsson.

Steingrímur Ingi Björnsson var einn af allfremstu knattspyrnumönnum okkar Þórsara á sinni tíð.

Steingrímur eða Steini Björns eins og hann var oftast kallaður sýndi ungur að árum snilli sína í knattspyrnu, en hann spilaði stórt hlutverk í liði Þórs og með ÍBA allt til ársins 1969. Árið 1975 tefldi Þór í fyrsta skipti fram meistaraflokki karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu eftir að ÍBA hafði verið skipt upp var hann fyrsti þjálfari Þórs.

Þann 11. janúar 1958 fór Steini Björns til Kölnar í Þýskalandi í íþróttaháskóla og dvaldi þar um 2-3 mánaða skeið. Með honum í för var KA-maðurinn Jón Stefánsson.

Á þessum tíma var Steini einungis 16 ára gamall en þegar farinn að leika með meistaraflokki ÍBA.

Steingrímur Björnsson var fyrsti landsliðsmaður Þórs í knattspyrnu.

Þórsarar eignuðust sinn fyrsta landsliðsmann í knattspyrnu á árinu 1960 en þá lék Steingrímur Björnsson tvo landsleiki gegn Vestur-Þýskalandi á Laugardalsvelli og gegn Írlandi ytra.

Fyrri leikurinn gegn Þjóðverjum fór fram á laugardalsvelli 3. ágúst og var Steingrímur í byrjunarliði Íslands. Leiknum lauk með sigri Þýskalands. 0-5. Ísland átti ekki mikla möguleika gegn ógnarsterku liði Þjóðverja.

Í dagblöðum þess tíma mátti lesa eftir leikinn. “Steingrímur Björnsson var allt og lítið notaður í leiknum en þá sjaldan hann fékk knöttinn sköpuðust möguleikar, en það var eins og hann væri ekki með eða menn kæmu ekki auga á hann. Í þau skipti, sem hann fékk knöttinn, sýndi hann að hann er hættulegur og snjall knattspyrnumaður.

Fyrsta landsliðsmark Steingríms kom á Laugardalsvelli 19. júní 1961 í vináttulandsleik gegn Hollandi sem lauk með 4:3 sigri Íslands og skoraði okkar maður á 60. mínútu.

Steingrímur var um árabil þjálfari yngri flokka hjá Þór og lagði þar fram reynslu sína of getu og margir ungir knattspyrnumenn félagsins minnast hans sem frábærs þjálfara og ekki síður kærs vinar.

Steingrímur átti sæti í knattspyrnuráði og var m.a. fulltrúi Þórs í stjórn ÍBA um árabil.

Árið 1956 var Steingrímur sæmdur bronsmerki KSÍ í Knattþraut.

Steingrími var veitt silfurmerki Þórs á 75 ára afmæli Þórs 1990. og gullmerki félagsins á 90 ára afmæli Þórs árið 2005.

Steini og eiginkona hans Gunnur Gunnarsdóttir voru alla tíð trú félaginu sínu, studdu það með ráðum og dáð. og Gunnur m.a starfaði ötullega og lengi með kvennadeild félagsins.

Börn þeirra Steina og Gunnar sem voru fimm ólust upp í þessu félagslega umhverfi okkar Þórsara og áttu öll á einhverjum tíma sögu um íþróttaiðkun hjá Þór.

Langri ævi Steingríms Inga Björnssonar er lokið en hann var 85 ára er hann lést þann 13. október s.l umvafinn ástvinum sínum.

íþróttafélagið Þór kveður hér merkan félaga sem svo sannarlega setti svip sinn á sögu félagsins og þakkar árin öll.

Íþróttafélagið Þór sendir eftirlifandi eiginkonu Steingríms, börnum þeirra, barnabörnum sem og öllum öðrum ástvinum sínar innilegust samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Steingríms Inga Björnssonar.

Hvíli hann í friði Guð.

Íþróttafélagið Þór

Útför Steingríms fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 23. október klukkan 13