Félagsfundur í Hamri á þriðjudag

Aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs boðar til félagsfundar í Hamri þriðjudaginn 3.mars næstkomandi klukkan 17:30.

Dagskrá

- Staðan á nýjum gervigrasvelli

- Nýtt samkomulag um íþróttamiðstöð á Þórssvæðinu

- Framtíðarsýn félagssvæðis Þórs

Við hvetjum Þórsara til að fjölmenna í félagsheimilið á þriðjudag og taka þátt í umræðum.