Ein stærsta helgi ársins í handboltanum er framundan og hefst raunar í kvöld með undanúrslitum Powerade bikarsins þar sem okkar konur í KA/Þór verða í eldlínunni þegar þær mæta Val klukkan 20:15.
Um er að ræða sannkallaða handboltahátíð sem öll fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Alls munu því fjögur lið frá Þór og KA/Þór taka þátt í gleðinni.
- 5.flokkur karla hjá Þór mætir ÍR í úrslitaleik á laugardag klukkan 11:00.
- 5.flokkur kvenna yngra ár KA/Þór mætir Val í úrslitaleik á laugardag klukkan 10:00
- 5.flokkur kvenna eldra ár KA/Þór mætir Val í úrslitaleik á laugardag klukkan 12:00
Við hvetjum Þórsara á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna á Ásvelli og hvetja okkar lið til sigurs!