Fjórir Þórsarar í æfingahópum U15-U17

Landsliðsþjálfarar U17, U16 og U15 hafa valið æfingahópa sem koma saman til æfinga síðar í þessum mánuði. Í hópunum þremur eru fjórir leikmenn úr yngri flokka starfi Þórs.

U15

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp sem kemur saman til æfinga dagana 19.-20. nóvember næstkomandi.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

Í hópnum eru Þórsararnir Fanney Mjöll Arnarsdóttir og Lydía Björk Ragnarsdóttir.

U16

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið leikmannahóp til æfinga dagana 16.-18. nóvember.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði.

Í hópnum er Þórsarinn Emma Júlía Cariglia.

U17

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem kemur saman til æfinga dagana 18.-20. nóvember næstkomandi.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði.

Í hópnum er Þórsarinn Hafdís Nína Elmarsdóttir.

 

Við þetta má bæta eins og áður hefur komið fram á heimasíðunni en þrjár til viðbótar úr Þór eru nú staddar í landsliðsverkefnum en það eru þær Birgitta Rún Finnbogadóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir með U19 og Harpa Karen Karlsdóttir með U15.

Við óskum okkar stelpum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.