Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Fótboltasumarið fer formlega af stað hjá okkar mönnum þegar Þór fær FH í heimsókn á laugardag. Um er að ræða leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og fer hann fram í Boganum þar sem ekki er búið að klára að reisa stúku og annað sem þarf að gera við nýja gervigrasvöllinn á Ásnum til að hann verði leikhæfur.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 en dagskrá verður í Hamri frá klukkan 12:00.
Besta deildin byrjar á Hlíðarenda
Deildarkeppnin, sjálf Besta deildin, hefst viku síðar þar sem Þór snýr aftur í efstu deild eftir tólf ára fjarveru og hefja okkar menn leik á því að heimsækja Val að Hlíðarenda sunnudaginn 12.apríl klukkan 17:00.
Knattspyrnudeild hefur nú hafið sölu á árskortum og er hægt að ganga frá kaupum á sínum ársmiða í miðasöluappinu Stubb eða með því að smella hér.
Einnig verður hægt að kaupa árskort í Hamri og verða þau til sölu á leiknum gegn FH.