Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Fyrsti hluti af brotum úr sögu Þórs þar sem Páll Jóhannesson hefur gluggað í sögukistuna og grafið upp alls konar fróðleik og fréttaefni leit dagsins ljós og var opinberaður á 111 ára afmælisdegi félagsins, laugardaginn 6. júní. Þar var þó ekki um fullklárað verk, en nú hefur verið bætt inn því sem þar vantaði á og bætt úr nokkrum hnökrum.
Brot úr sögu Þórs hefur nú litið dagsins ljós á rafrænu formi, aðgengilegt fyrir öll þau sem vilja fræðast um sögu félagsins. Páll Jóhannesson, heiðursfélagi í Þór, sjálfboðaliði í félaginu til áratuga og fyrrverandi stjórnarmaður, hefur lagt í mikla vinnu við heimildaöflun, grúskað í skjalasöfnum, fundargerðabókum og öðrum gögnum, tekið viðtöl við gamla félagsmenn og verið með allar klær úti við að safna saman þeim gríðarlega fróðleik sem er grunnurinn að sögu félags sem á að baki starfsemi í blíðu og stríðu í vel yfir heila öld.
Páll hefur gripið niður í fundargerðir, dagbækur og aðrar heimildir úr sögu félagsins og unnið eins konar annála þar sem stiklað er á stóru í starfsemi félagsins fyrstu áratugina. Hér lítur dagsins ljós afrakstur þessarar vinnu fyrir árin 1915-1940, eða 26 fyrstu starfsár félagsins, fyrsti glugginn af mörgum þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að kíkja inn og fræðast um sögu þessa merka félags. Starfsemin var mismikil eftir árum á því tímabili sem hér um ræðir og sum árin lá hún jafnvel alveg eða nær alveg niðri, en önnur ár voru blómlegri eins og gengur og gerist. Litlu munaði að félagið lognaðist út af, en sem betur fer var blásið í það nýju lífi af kröftugu og áhugasömu hugsjónafólki um 15 árum eftir stofnun þess.
Þetta rit er aðeins gefið út rafrænt og haft aðgengilegt á vef félagsins því hugmyndin er að inn í það sé hægt að bæta textum og/eða myndum eftir því sem tilefni gefst til. Hægt er að nálgast skjalið með því að velja Félagið í valmyndinni hér að ofan og þar undir Sagan og heiðursmerki. Eða þá að smella á hlekkinn eða myndina hér neðar í fréttinni.
Óhætt er að fullyrða að Páll hafi varið í þetta verk þúsundum vinnustunda enda hefur hann lengi haft sögu Þórs sem eitt af sínum aðaláhugamálum og verið óþreytandi við að sanka að sér hvers kyns fróðleik og heimildum sem liggja að baki sögu félagsins.
Íþróttafélagið Þór færir Páli bestu þakkir fyrir þrotlaust starf við að skrá sögu félagsins.
Gluggað í sögukistu Þórs - Íþróttafélagið Þór 1915-1940 (pdf-skjal)
Höfundur: Páll Jóhannesson
Útgefandi og ábyrgðaraðili: Íþróttafélagið Þór
Uppsetning: Haraldur Ingólfsson
Allur réttur áskilinn, Íþróttafélaið Þór 2026.
Smellið á myndina til að opna pdf-skjal.