Handbolti: Rútuferð til Reykjavíkur á föstudag

Handknattleiksdeild Þórs stendur fyrir rútuferð með stuðningsfólk á þriðja leikinn í einvígi Þórs og Fjölnis í Grill 66 deild karla.

Leikurinn fer fram í Dalhúsum í Grafarvogi og hefst kl. 19:30. Brottför frá Hamri kl. 12:30.

Farmiðasala í þessa ferð er í Stubbi. Sætið kostar 3.000 krónur.