Heimaleikur gegn FH í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta í gær í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.

Okkar menn voru í pottinum ásamt hinum Bestu deildar liðunum og fékk Þór heimaleik gegn FH.

Leikurinn fer fram um páskana, laugardaginn 4.apríl næstkomandi og verður leikið í Boganum. Því miður er framkvæmdum við Þórsvöllinn enn ekki lokið en fyrsti heimaleikur í Bestu deildinni er fimmtudaginn 23.apríl og er hann fyrirhugaður á nýja vellinum.

Okkar menn hefja leik í Bestu deildinni á tveimur útileikjum en fyrsti leikur er sunnudaginn 12.apríl gegn Val á Hlíðarenda.