Heimasigur gegn Fylki

Mynd - Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd - Ármann Hinrik/Akureyri.net

Okkar menn í fótboltanum unnu góðan sigur á Fylki í 5.umferð Lengjudeildarinnar þegar liðin áttust við í Boganum í kvöld.

Leiknum lauk með 4-1 sigri okkar manna. Clement Bayiha kom Þór yfir í fyrri hálfleik. Fylkismenn jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik en Ibrahima Balde, Sverrir Páll Ingason og Sigfús Fannar Gunnarsson svöruðu fyrir okkar menn.

Akureyri.net og Fótbolti.net fjölluðu um leikinn. 

Næsti leikur Þórs er nágrannaslagur gegn Völsungi á Húsavík miðvikudaginn 4.júní næstkomandi.