Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Ingunn Björk Jónsdóttir kveðja
Minning.
Kveðja frá Íþróttafélaginu Þór.
Í dag mánudaginn 14. september blaktir fáni í hálfa stöng við Hamar.
Það er gert í minningu og virðingu góðs félaga í áratugi, en í dag fer fram frá Akureyrarkirkju kl 13.00 útför Ingunnar Bjarkar Jónsdóttur.
Ingunn var á sjötugasta og fimmta aldursári en hún lést þann 31. ágúst s.l eftir erfið veikindi.
Ingunn var mikill og góður Þórsari í áratugi, og lagði félaginu til hjálpahönd á ýmsum vettvangi. Ingunn var m.a ein af þeim gæðakonum er stofnuðu kvennadeild félagsins á sínum tíma og starfaði hún ötullega með þeim kjarnakonum í þeirri dýrmætu deild okkar Þórsara.
Ingunn var gift Árna Gunnarssyni, Árna sprett sem allir þekkja og studdi hún sinn mann, bæði á meðan á farsælum knattspyrnu- og handboltakeppnisferli hans stóð, sem og í félagsmálum fyrir félagið eftir að skór Árna voru komnir upp á hilluna frægu. Árni sat um árabil sem formaður handknattleiksdeildar.
Ingunn og Árni bjuggu um tíma í Hamri félagsheimili okkar og var Árni starfsmaður félagsins um skeið og þá hjálpaði Ingunn til við hin ýmsu störf. Þau störf og það framlag er þakkað nú.
Svo voru þau hjón Ingunn og Árni dugleg að fylgja börnum sínum tveimur í æfingar og keppnir og voru eins og margir þórsarar með eldrautt blóð í æðum alla tíð.
Nú að leiðarlokum vill Íþróttafélagið Þór þakka Ingunni Björk samfylgdina og gengin spor og sendir eftirlifandi eigimanni Ingunnar, Árna Gunnarssyni og börnum þeirra sem öllum öðrum ástvinun sínar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Ingunnar Bjarkar Jónsdóttur.
Hvíli hún í friði Guðs.