Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Knattspyrnudeild Þórs hefur gert samning við Isaac Atanga til næstu þriggja ára.
Atanga kemur til Þórs frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF en hann hefur einnig leikið með Cincinnati í MLS deildinni, Göztepe í Tyrklandi og norska liðinu Álasund á ferli sínum auk FC Nordsjælland þar sem ferill hans hófst.
Atanga er 26 ára gamall kantmaður, fæddur og uppalinn í Gana þar sem hann kom upp í gegnum Right to Dream akademíuna og átján ára gamall skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við danska úrvalsdeildarliðið FC Nordsjælland.
Þar skoraði hann 12 mörk í 58 leikjum fyrir aðallið Nordsjælland frá 2019-2021 og hefur skorað alls 28 mörk í 160 leikjum í deild og bikar með ofangreindum félögum.
Hann mun koma til móts við okkar menn á Marbella á Spáni um helgina en þar verður Þórsliðið við æfingar næstu daga.
Við bjóðum Atanga velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar.