Íþróttahátíð Allir með! í Höllinni á sunnudag

Íþróttahátíð fyrir börn með stuðningsþarfir á grunnskólaaldri. Öll fá að prófa íþróttir á sínum forsendum.

Æfingarnar eru hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning og hentar betur að vera í minni hópum.

Börnin hafa aðgang að fleiri þjálfurum á æfingum á vegum Allir með og eru þeir á öllum aldri.

Íþróttahátíðin fylgir markmiðum verkefnisins Allir með, sjá frekar á www.allirmed.com

Öll velkomin 🙂