Knattspyrna: Öruggur sigur á FH – Sandra María með fjögur

Sandra María Jessen fagnar þriðja marki sínu í gær. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net.
Sandra María Jessen fagnar þriðja marki sínu í gær. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net.

Þór/KA-stelpurnar komu heim með öll þrjú stigin úr viðureign sinni við FH, sem fram fór á BIRTU-vellinum, heimavelli Hauka, í gær. Sandra María Jessen skoraði öll mörk liðsins í 4-0 sigri og er efst á lista markaskorara Bestu deildarinnar.

Þór/KA skoraði tvívegis á fyrsta hálftíma leiksins, en FH-ingar áttu skot í þverslá seint í fyrri hálfleiknum. FH-ingar gerðu sig líklegar til að minnka muninn framan af seinni hálfleiknum, en varð ekki ágengt. Sandra María hélt hins vegar áfram á sömu braut og í þeim fyrri, bætti við tveimur mörkum á stuttum kafla undir lok leiksins.

FH - Þór/KA 0-4 (0-2)

  • 0-1 Sandra María Jessen (7'). 
  • 0-2 Sandra María Jessen (27'). 
  • 0-3 Sandra María Jessen (85'). 
  • 0-4 Sandra María Jessen (88').
  • Leikskýrslan (ksi.is)
  • Sjá einnig umfjöllun og fróðleik á thorka.is.