Knattspyrna: Þór tekur á móti Fjölni í Lengjubikar karla

Þórsarar spila lokaleik sinn í riðlakeppni A-deildar Lengjubikarkeppni karla í dag þegar þeir taka á móti liði Fjölnis í Boganum. Leikurinn hefst kl. 16:30.

Þetta er lokaleikur riðilsins, en úrslit hans skipta í raun ekki máli því Þórsarar hafa þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti í undanúrslitum mótsins. Þar mæta þeir Breiðabliki og fer sá leikur fram í Boganum fimmtudaginn 14. mars og hefst kl. 16:30. 

Beina útsendingu frá leiknum má nálgast hér.