Knattspyrna: Þór/KA í toppslag í Lengjubikar í dag

Þór/KA leikur sinn fjórða leik í A-deild Lengjubikarsins í dag þegar liðið mætir FH í Skessunni í Hafnarfirði kl. 14.

Fyrir leikinn er Þór/KA í efsta sæti riðils 2 með níu stig, en FH er með sex stig. Bæði liðin hafa leikið þrjá leiki. Víkingur hefur sex stig eins og FH, en á aðeins einn leik eftir. Stjarnan er með fjögur stig eftir þrjá leiki. Tvö efstu liðin fara áfram í undanúrslit.

Þór/KA mætir FH í dag og fær svo Stjörnuna í heimsókn í Bogann laugardaginn 16. mars. FH mætir Víkingi föstudaginn 15. mars.