Knattspyrna: Þór/KA sækir FH heim í bikarnum

Það er leikdagur hjá Þór/KA í dag. Stelpurnar fara í Hafnarfjörðinn og mæta FH í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Liðin í Bestu deildinni koma inn í bikarkeppnina í 16 liða úrslitum og bæði lið því búin að spila einn leik í keppninni til þessa. FH vann FHL 3-2 í 16 liða úrslitunum og Þór/KA vann 2-1 sigur á Tindastóli á Dalvíkurvelli.

Þór/KA og FH hafa mæst þrisvar í bikarkeppninni. Allar viðureignirnar hingað til hafa farið fram á Kaplakrikavelli, eins og leikurinn í dag. Þór/KA vann 5-1 útisigur í átta liða úrslitum 2010 en féll út í undanúrslitum það árið og vann svo 5-0 útisigur í 16 liða úrslitum 2013 og fór þá alla leið í úrslitaleikinn. Þriðja viðureign liðanna í bikarkeppninni endaði með 1-1 jafntefli eftir framlengdan leik 2021, en FH hafði betur í vítaspyrnukeppni.

Leikurinn í dag verður því fjórða viðureign þessara liða á Kaplakrikavelli í bikarkeppni KSÍ.