Knattspyrna: Þór/KA2 vann Kjarnafæðimótið

Lokaleikurinn í kvennadeild Kjarnafæðimótsins var spilaður í Boganum í kvöld og voru það Þór/KA-liðin tvö sem áttust við.

Þjálfarar notuðu tækifærið og tefldu í raun fram fjórum liðum þar sem meistaraflokkshópurinn spilaði fyrri hálfleikinn, en síðan var voru 11 skiptingar í öðru liðinu og tíu í hinu áður en seinni hálfleikurinn hófst. Leikmenn í 2. flokki komu inn hjá Þór/KA og leikmenn í 3. flokki hjá Þór/KA2. 

Þór/KA - Þór/KA2 2-4 (1-2)

  • 1-0 Sandra María Jessen (5'). 
  • 1-1 Hildur Anna Birgisdóttir (22').
  • 1-2 Hildur Anna Birgisdóttir (37')
  • 2-2 Rebekka Sunna Brynjarsdóttir (47')
  • 2-3 Móeiður Alma Gísladóttir (67')
  • 2-4 Aníta Ingvarsdóttir (89').

Bæði lið höfðu unnið alla þrjá leiki sína fram að leiknum í kvöld og enda því í tveimur efstu sætunum. Það var Angela Mary Helgadóttir, fyrirliði Þórs/KA2 sem tók við bikarnum fyrir sigur í Kjarnafæðimótinu 2024.