Landsliðsfréttir úr fótboltanum

Nokkur landsliðsverkefni hafa verið og eru í gangi hjá yngri landsliðum Íslands í fótbolta.

Hafdís í lokahóp U17

Hafdís Nína Elmarsdóttir úr 3.flokki Þórs/KA tók þátt í æfingamóti með U17 í Portúgal á dögunum þar sem íslenska liðið mætti jafnöldrum sínum frá Wales, Portúgal og Danmörku. Hafdís kom við sögu í öllum leikjum íslenska liðsins.

Í kjölfarið var svo valinn lokahópur sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni EM 2027 og var Hafdís valin í þann hóp.

Ísland er þar í riðli með Kasakstan, Tékklandi og Þýskalandi en leikið er í Þýskalandi.  Fyrsti leikur liðsins fer fram 9. október þar sem Ísland mætir Tékkum áður en það mætir Þýskalandi 12. október og Kasakstan 15. október.

Smári með U17 í undankeppni EM

Smári Signar Viðarsson er í U17 hópi Íslands sem tekur nú þátt í fyrri umferð undankeppni EM 2027 en leikið í Bosníu og Hersegóvínu. 

Smári hóf leik á bekknum þegar Ísland mætti Gíbraltar í gær en var skipt inná á 22.mínútu og lék leikinn til enda. Leiknum lauk með 4-0 sigri Íslands.

Næsti leikur Íslands er á laugardag þegar liðið mætir heimamönnum í Bosníu og Hersegóvínu en síðasti leikur Íslands er gegn Grikkjum.

Þess ber að geta að Smári er ekki eini Þórsarinn í hópnum því læknir íslenska liðsins í ferðinni er Hrannar Ingi Halldórsson sem fór í gegnum unglingastarf Þórs í fótbolta og handbolta.

Þrír Þórsarar á U15 æfingum

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir landsliðsþjálfari U15 kvenna valdi leikmannahóp til æfinga í Miðgarði sem hafa verið í gangi síðustu þrjá daga og í þeim hópi voru þrír leikmenn úr 4.flokki Þórs.

Það eru þær Fanney Mjöll Arnarsdóttir, Harpa Karen Karlsdóttir og Tinna Margrét Axelsdóttir.

Við óskum okkar fólki til hamingju með valið og góðs gengis í sínum verkefnum.