Leikmannakynning og kótilettur í Hamri

Leikmannakynning meistaraflokks Þórs fyrir Bestu deildina fer fram í Hamri föstudaginn 10.apríl.

Þar mun þjálfarateymi Þórs kynna leikmannahópinn fyrir komandi tímabil sem hefst á sunnudaginn þegar okkar menn heimsækja Val að Hlíðarenda.

Úrvals kótilettur verða á boðstólnum og almenn gleði.

Við hvetjum Þórsara til að hafa hraðar hendur við að skrá sig þar sem 90 sæti eru í boði.

Skráning fer fram hér