Lokanir um páska

Vekjum athygli á að lokað verður í Boganum og Hamri yfir páskana, frá og með fimmtudegi til og með mánudegi.

Þetta þýðir meðal annars að föstudagskaffið fellur niður ásamt því að engin dagleg starfsemi verður í húsunum.

Á laugardag verður þó mikið um dýrðir á félagssvæðinu í tengslum við leik Þórs og FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta.

Leikurinn markar upphaf fótboltasumarsins og verður dagskrá í kringum leikinn auglýst á miðlum knattspyrnudeildar en leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á RÚV