Nýr framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar

Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs.

Um er að ræða nýja stöðu hjá knattspyrnudeild og mun Eiður hafa yfirumsjón með öllu starfi deildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra.

Eiður var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla á síðasta tímabili auk þess að vera yfirmaður leikmannaþróunar. Hann stígur nú frá því starfi og færir sig alfarið á skrifstofuna.

Eiður er 35 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun á efsta stigi á Íslandi. Hann er með UEFA Pro þjálfaragráðuna auk þess að hafa lokið Sports Management frá Johan Cruyff Institute í Barcelona.

Umsvif knattspyrnudeildar hafa aukist töluvert á undanförnum árum og er ráðningin á Eiði liður í að mæta þeim áskorunum sem því fylgja. Að mati deildarinnar er um að ræða löngu tímabært skref og væntum við mikils af Eiði í starfinu.